Hrillileg veikindi hjá mér til margra ára

 

Ég hef á seinni árum verið plöguð af alvarlegum sjúkdómi sem nýlega Hefur
fundist greining á, en engin lækning við, enn sem komið er.

Eftirfarandi er lýsing á dæmigerðum degi þegar einkennin blossa upp:

Ég ákvað einn daginn að þvo bílinn og hélt áleiðis að bílskúrnum, en tók þá
eftir að bréf höfðu borist inn um lúguna. Ég tók bréfin og ákvað að fara í
gegnum póstinn áður en ég færi að þvo bílinn.

Sorteraði póstinn og ákvað að henda ruslpóstinum en tók þá eftir að
ruslafatan var orðin full og lagði því reikningana sem höfðu borist, frá mér
á eldhúsborðið og ætlaði út með ruslið, en ákvað þá að fara og borga

þessa reikninga, fyrst ég yrði við bílinn hvort eð er. Fór inn í herbergi
til þess að ná í veskið og bíllyklana en sá þá ný e-mail í tölvunni og ákvað
að svara þeim strax svo ég gleymdi því ekki.

Ákvað að ná mér í kaffibolla fyrst. Á leið inn í eldhús tók ég eftir Því að
blómið í borðstofunni var orðið heldur þurrt. Hellti nýlöguðu kaffi í bolla
og ákvað að vökva blómið áður en lengra væri haldið. Náði í blómakönnuna og
ætlaði að fylla hana með vatni þegar ég tók eftir því að fjarstýringin af
sjónvarpinu lá á eldhúsborðinu. Ákvað að fara með hana á sinn stað í
sjónvarpsherberginu fyrst, svo ég fyndi hana örugglega um kvöldið þegar ég
settist fyrir framan sjónvarpið að horfa á uppáhaldsþáttinn "Sex in the
City". Á leið í sjónvarpsholið rakst ég á handklæði sem ég ætlaði að setja í
þvottavélina sem beið full af þvotti.

Fór þangað og setti í vélina en fann þá gleraugun sem ég hafði verið að
leita að fyrr um morguninn. Lagði fjarstýringuna frá mér í þvottahúsinu og
fór með gleraugun inn í svefnherbergi þar sem ég ætlaði örugglega að finna
þau þegar ég færi í rúmið að lesa uppáhaldsbókina mína......ef ég finn hana.

Stoppaði í svefnherberginu þar sem dagurinn hófst og mundi ekki lengur Hvað
ég ætlaði upphaflega að fara að gera !!! Í lok dags hafði ég því hvorki
þvegið bílinn né borgað reikningana, ekki vökvað blómin eða þvegið þvottinn,
ekki farið út með ruslið, heldur ekki svarað e-mailunum og var auk þess
búinn að týna fjarstýringunni, bíllyklunum og veskinu og kaffið beið kalt á
eldhúsborðinu. Ég skildi ekkert í þessu því ég hafði verið á fullu allan
daginn í ýmsum snúningum. Ég hef nú uppgötvað að þetta er alvarlegt vandamál
sem ég ætla að leita mér hjálpar við.

Þessi sjúkdómur kallast á fagmáli AAADD eða "Age Activated Attention Deficit
Disorder", á íslensku "Aldurstengdur athyglisbrestur"

bestu kveður til þeirra sem berjast lika við þetta og allra hinna

kveðja DísaFootinMouth


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dísa Gunnlaugsdóttir

ég ættla svo ynnilega að vona að  það séu fleiri en eg í þessum vanda og ef þetta er vegna þess að ég er svo helvíti samviskusöm þá held ég að ég sé bara nokkurð sátt við þennan sjugdóm  takk fyrir stuðninginn

Dísa Gunnlaugsdóttir, 14.4.2008 kl. 09:21

2 Smámynd: Helga Dóra

Maður þarf nú ekki að vera hár í aldri til að þekkja þetta.... Hélt að þú hefðir komist í dagbókina mína þangað til að ég sá þetta með kaffið þá fattaði ég að þetta var ekki úr minni bók. Drekk ekki kaffi. En guð minn góður hvað ég þekki þetta,,, er samt bara 32 ára sko.....

Helga Dóra, 14.4.2008 kl. 10:23

3 Smámynd: Dísa Gunnlaugsdóttir

ja ég skil þig svo vel ég held að þetta sé á svo mörgum heimilum eða hjá morgum konum til staðar en kannski við fáum lækningu við þessu það hlytur að koma að því ég byð mig allavegna framm hér og nú að vera tilrauna dyr á þessum lyfjum sem koma við þessu lika hillilega sjugdómi sem virðist hrá mann þratt fyrir ungan aldur hvernig verð ég þegar ég er orðin 40 ef eingin lækning kemur

Dísa Gunnlaugsdóttir, 14.4.2008 kl. 10:50

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Nú hló ég. Lýsir mér í hnotskurn. Aldurstengdur athyglisbrestur.

Jóna Á. Gísladóttir, 15.4.2008 kl. 11:29

5 Smámynd: Dísa Gunnlaugsdóttir

ja frábært það virðast alltaf fleiri og fleiri vera að greinast með þetta gott að eg er ekki ein

Dísa Gunnlaugsdóttir, 15.4.2008 kl. 13:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband